Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2010

Ég er bankastjórinn á mínu heimili

love_1600_x_1200-t1_1020558.jpgmanneskja sem að ég þekki auglýsti einn daginn sjónvarp til sölu,  var það mjög ódýrt bara sett á það litlar tíu þúsund krónur.  Þetta tæki seldist einsog skot, að vísu var það algjörlega ónothæft enda bilað.                 En vitaskuld fylgdu þær upplýsingar ekki með í auglýsinguni,   enda engu að síður sjónvarp var það.             Á sama hátt getum við öll kosið að selja einhverjum útí bæ baneitraða sveppi sem draga menn til dauða, já eða hús reist á sandi.       Á Íslandi er engum treystandi sem fer fyrir einhverskonar embætti, yfirleitt er einhver valin sérstaklega til þess að gegna hlutverki peðsins.      Þeir vita ekki mikið og stíga jú ekki í vitið.    En andsvörin við öllum krefjandi spurningum er á sömu leið,,,,     Ég veit ekki neitt, gat ekki vitað það,, eða ég hafði ekki þær upplýsingar.           Nú geta menn kvartað yfir núverandi ríkisstjórn sem fer fyrir nánast gjaldþrota fyrirtæki,  kæmi mér ekki á óvart að Sjálfstæðismenn séu aftur orðnir væntanlegar frelsishetjur íslendinga,  enda snillingar í að gefa burtu penninga sem að þeir eiga jú ekkert í sjálfir.                                    Reyndar er eina heimsmetið sem við eigum ennþá inni það merkilegasta af öllum,  en það er heimsmet í óábyrgum stjórnmálamönnum,  en það met yrði ekki slegið í bráð.          Það er samt mesta furða að til er fólk sem notar settningar einsog þá,  að treysta bönkum.  En það er eingöngu hægt að treysta mönnum,  og reyndar er það svo alltaf maður á mann.   haldi einhver að hann geti treyst heilli stofnum mun sá hinn sami brenna sig einsog lítið barn á eldinum.               það er alltaf einhvert eppli ormétið á hverju einasta epplatré, því miður er hvorki maðurinn né veröldin fædd fullkomin.       Hvað getum við svo mögulega lært að þessu stærsta bánkaráni í sögu íslendinga.   kanski það að treysta eingöngu fólki sem að við þekkjum af góðum störfum eða þá persónulega,  að bankar eru í raun einsog lítil börn sem heimta nammi alla daga þó að það sé óhollt, og að mamma og pabbi geti verið nánast jafn vitlaus og litlu börnin.
mbl.is 15 milljónir fyrir skýrslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og risavaxin þjóðin stækkar en

Lögreglan sem að uppiheldur lögum og reglum í þessu landi höndlar ekki einu sinni miðborgina um helgar,  er alltof fámenn enda vel svelt fjárhagslega.     Get eiginlega ekki einu sinni ímyndað mér hvernig 300.000 manna samfélagið , sem er ekki einu sinni á við litla borg á meiginlandinu,   hafi nokkuð með slíka stofnun að gera.                             J. Edgar. Hoover sem að stofnaði F.B.I.  í Bandaríkjunum í kringum 1935,  notaði sína menn óspart í fyrirbyggjandi verkefni sem ætlað var að safna upplýsingum sem gætu flétt ofan af glæpsamlegu athæfi manna,   vitaskuld gekk það oft eftir enda fáir ef nokkur maður laus við synd.   Málið er að F.B.I.   hleraði mest síma stjórnmálamanna og stunduðu þeir víðtækar njósnir á elítu þessarar miklu þjóðar.                                                                 Reynt var svo að hemja þetta litla konugríki hans Hoovers,  en ævinlega tókst Hoover að verjast öllum atlögum,  enda með mikið gagnasafn um mjög marga stjórmálamenn,   sem höfðu hluti á samviskuni einsog að hafa haldið frammhjá eiginkonuni,   eða að þeir væru hommar,  eða bara eitthvað sem gerir mennina mennska.                    Þegar að john. F. kennedy gerði Róbert Kennedy að dómsmálaráðherra og sá síðarnefndi ætlaði að ráðast gegn skipulagðri glæpastarfsemi .  Var Hoover þá ekki með neinn af sínum mönnum í vinnu við neitt slíkt,   taldi hann reyndar og trúði því að skipulögð glæpastarfsemi væri varla til í landinu.         Nei,  mestur mannskapurinn var þá í bullandi vinnu við að ýmist hlera ( ólöglega )  síma eða planta hlerunar búnaði hjá stjórnmálamönnum.             Nei ég tel að íslenska ríkið þurfi að forgangsraða sínum verkefnum,  byrjum á að tryggja öryggi þegna þessarar þjóðar með fullmannaðri lögreglu, áður en við förum að eyða penningum og mannskap í að finna glæpamenn án gruns né tilefnis...  Þetta er lítil þjóð með eyjaskeggjum,  eina skipulagða glæpastarfsemin hér er fólgin í frændsemi okkar fólks,  og ekki þarf leynilögreglu til þess að fylgjast með fjármálastarfsemi,  enda hefði þá fjármálaeftirlitið lítið sem ekkert að gera .
mbl.is „Leyniþjónusta“ enn upp á yfirborðið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Takk fyrir háttsettur félagsmálaráðherra

Þetta er væntanlega það sem koma skal. Hver skyldi vera hæfari sem umboðsmaður skuldara heldur en virkilega djúpt sokkin skuldari.               Hann á jú engra hagsuma að gæta ?  Eða hvað ?           Fréttamenn eru illa undirbúnir og tala einsog tíu ára gamlir krakkar..........  Maðurinn á hagsmuna að gæta og það er alveg nóg til þess að teljast gjörsamlega vanhæfur til starfans.    Þetta er svona svipað og að ráða eiganda bjórverksmiðju sem formann SÁÁ.      Með allri virðingu fyrir háttsettum félagsmálaráðherra,  verður maður jú að álykta sem svo að maðurinn sé alsekki með toppstykkið í lagi.  Þetta mál er óverjandi, sama hvaða skil eða ekki skil voru á skuldum Runólfs.           Annað og öllu alvarlegar er sú staðreynd að við íslendingar megum bara ekki við meiri spillingu í erlendum fjölmiðlum....   Við munum líta all verulega veruleikafirrt út með þessa fyrirsögn í tildæmis Wall street journal  "   Umboðsmaður skuldara á Íslandi, skuldar hundruði milljóna, og er góð kunningi félagsmálaráðherra.     Þetta myndi örugglega auka trúverðugleika okkar þjóðar útá við.   Ég hugsa að ríkisstjórnir annara þjóða myndu lýta til okkar sem fyrirmynd annara þjóða.....Nei það sem að okkur vantar núna er trúverðugleiki,  heiðarleiki, skynsemi,   það breytir akkúrat engu hvort að Runólfur sé góður maður með góðann vilja,  hvort að hann hafi verið plataður inní skuldasúpu eður ei, það sem skiptir máli er að hann getur aldrei orðið hæfur sem umboðsmaður skuldara vegna hagsmuna árekstra.        Háttvirtur félagsmálaráðherra verður að gera aðeins betur í sinni viðleitni að verja sinn góða kunningja heldur en að tala um að skoða einhver skil á einhverjum skuldum sem koma hinu eigilega máli ekkert við.   Þau munu engu breyta um þá staðreynd að íslendingar vilja jákvæða umfjöllun um þjóð og menningu í erlendum fjölmiðlum,   hér verður ekki byggt upp neitt traust útávið hvað þá inná við,  með svona fíflaskap... Vil taka það svo framm að bæði Runólfur og háttvirtur félagsmálaráðherra geta verið hinir mestu sóma menn, og viljað þjóð sinni vel,     en kanski þurfa þeir bara aðeins betri rökhugsun,  og þá öðlast þeir skynsemi, og með skynsemi geta þeir svo búið til eitthvað s20-unusual-churches-p1-caldari.jpgem heitir trúverðugleiki               
mbl.is Vissi að Runólfur tapaði fé
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband