Ég er bankastjórinn á mínu heimili

love_1600_x_1200-t1_1020558.jpgmanneskja sem að ég þekki auglýsti einn daginn sjónvarp til sölu,  var það mjög ódýrt bara sett á það litlar tíu þúsund krónur.  Þetta tæki seldist einsog skot, að vísu var það algjörlega ónothæft enda bilað.                 En vitaskuld fylgdu þær upplýsingar ekki með í auglýsinguni,   enda engu að síður sjónvarp var það.             Á sama hátt getum við öll kosið að selja einhverjum útí bæ baneitraða sveppi sem draga menn til dauða, já eða hús reist á sandi.       Á Íslandi er engum treystandi sem fer fyrir einhverskonar embætti, yfirleitt er einhver valin sérstaklega til þess að gegna hlutverki peðsins.      Þeir vita ekki mikið og stíga jú ekki í vitið.    En andsvörin við öllum krefjandi spurningum er á sömu leið,,,,     Ég veit ekki neitt, gat ekki vitað það,, eða ég hafði ekki þær upplýsingar.           Nú geta menn kvartað yfir núverandi ríkisstjórn sem fer fyrir nánast gjaldþrota fyrirtæki,  kæmi mér ekki á óvart að Sjálfstæðismenn séu aftur orðnir væntanlegar frelsishetjur íslendinga,  enda snillingar í að gefa burtu penninga sem að þeir eiga jú ekkert í sjálfir.                                    Reyndar er eina heimsmetið sem við eigum ennþá inni það merkilegasta af öllum,  en það er heimsmet í óábyrgum stjórnmálamönnum,  en það met yrði ekki slegið í bráð.          Það er samt mesta furða að til er fólk sem notar settningar einsog þá,  að treysta bönkum.  En það er eingöngu hægt að treysta mönnum,  og reyndar er það svo alltaf maður á mann.   haldi einhver að hann geti treyst heilli stofnum mun sá hinn sami brenna sig einsog lítið barn á eldinum.               það er alltaf einhvert eppli ormétið á hverju einasta epplatré, því miður er hvorki maðurinn né veröldin fædd fullkomin.       Hvað getum við svo mögulega lært að þessu stærsta bánkaráni í sögu íslendinga.   kanski það að treysta eingöngu fólki sem að við þekkjum af góðum störfum eða þá persónulega,  að bankar eru í raun einsog lítil börn sem heimta nammi alla daga þó að það sé óhollt, og að mamma og pabbi geti verið nánast jafn vitlaus og litlu börnin.
mbl.is 15 milljónir fyrir skýrslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Góður.

Sigurður Haraldsson, 25.8.2010 kl. 23:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband